The love of nature

23.11.2007 18:29:53 / rannj

Flensu fjör

 Jæ´ja ég vona að þetta fari inná síðuna,síðasta bloggið mitt fór eithvert útí loft!! EN það er semsagt flensa í gangi hérna núna og ég er rétt að byrja með hana, beinverkir kvef og hausverkur, ojjj, vona að ég verði búin að ná mér fyrir mánudag, því í næstu viku eru þemadagar í skólanum og ég er mjög spennt yfir því ég held að það verði mjög gaman!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 20:13:59 / rannj

Gott að vera á Hellissandi

Halló Halló

 

Mikið hef ég verið löt að blogga, ég hef bara verið löt yfir höfuð. En jæja, ég er alveg að fíla mig í tætlur hérna á Hellissandi, hér er sko gott að vera, það hafa allir verið mjög almennilegir við okkur og það er mjög notalegt andrúmsloft hérna. Mér gengur vel í vinnunni, er með fína krakka í bekknum og svo er góður starfsandi í skólanum, skemmtilegt fólk sem ég er að vinna með. Það vantar bara okkar eigið húsnæði og þá er þetta alveg pottþétt.  EN Brandur er semsagt að vinna á fullu á sjónum og gengur mjög vel, hann er að vísu svoldið lengi í burtu og ég sakna hans þvílíkt mikið, en á móti kemur að þetta er næstum eins og þegar við vorum að deita:D En síðustu helgi kom hann í helgarfrí og við skruppum til Akranes og fórum á mörkina að djamma á föstudagskvöldið og það var alveg frábært, en ég var svoldið mikið drukkin og datt utan í vegg, en Brandur sleppti því alveg að slasa sig. Hann hélt reyndar smá show fyrir lögguna á leiðinni heim, en löggunni fannst það ekki fyndið, þeir eru alveg húmorslausir greyin!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ( Ekki allir reyndar, ég þekki einn sem getur verið þokkalega fynginn).    EN eini gallinn við að vera hér er að allar vinkonur mínar eru allt of langt í burtu!!! Ég sakna knúsanna þeirra:frown:


» 2 hafa sagt sína skoðun